April 4th, 2011 by Ingveldur Ýr
Næstu byrjendanámskeið hefjast miðvikudaginn 27. apríl kl. 20
5 vikna námskeið innihalda vikulega hóptíma og er einn einkatími innifalinn á námskeiðinu og kennsludiskur að auki. Alls er námskeiðið í 6 skipti.
verð 35.000 – skráning er hafin á ingveldur@gmail.com
Þessi söngnámskeið eru ætluð þeim sem vilja fá undirstöðuatriðin á hreint.
Kennt er í hóptímum; öndun, raddæfingar, stuðning, líkamsstöðu ofl.
Tóneyrað er þjálfað með hnitmiðuðum æfingum og kennt að radda. Almenn sönglög sungin í hóp.
ATH! Námskeiðin fást niðurgreidd af flestum stéttarfélögum s.s. VR, Eflingu, BHM og fleirum.
January 24th, 2011 by Ingveldur Ýr
Byrjendanámskeiðið byrjar í kvöld kl. 20. Þetta verður 5 vikna námskeið með einum einkatíma alls 6 skipti. Grunnatriðin í raddbeitingu; öndun, líkamsstaða og raddæfingar verða kenndar en einnig unnið með tóneyrað og sungin létt almenn lög.
Hlakka til að byrja með nýjan hóp!
Í dag kl. 18 byrjar einnig framhaldsnámskeið í tónfræði fyrir þá sem hafa klárað tónfræði 1 með grunnstigi í tónfræði.
Öll námskeið eru kennd í Tröllaborgum 6 í Grafarvogi
January 1st, 2011 by Ingveldur Ýr
Í janúar hefjast ný námskeið;
Byrjendanámskeið hefst mánudaginn 24. janúar,
skráning fer fram á ingveldur@gmail.com
Þetta eru fimm vikna námskeið með einkatíma og kennsludiski. Námskeiðsgjaldið er 35.000 og fæst niðurgreitt af flestum stéttarfélögum. sjá “Námskeið”
Framhaldsnámskeið í tónfræði og nótnalestri hefst einnig 24. janúar og stendur yfir í 10 vikur. Því líkur með 5. stigi í tónfræði.
Kennsla í einkatímum hefst mánudaginn 10. janúar.
December 26th, 2010 by Ingveldur Ýr
Ég óska ykkur öllum gleðilegra jóla og farsæls komandi “söng-árs”!
Á nýju ári hefjast byrjendanámskeiðin mánudaginn 17. janúar, en almenn kennsla
í einkatímum hefst þann 10. janúar. Þó æfir Spectrum frá 4. janúar.
Heilmargir fengu gjafabréf í jólagjöf og vona ég að gjöfin hafi glatt! Hvet gjafakorthafana til að stíga skrefið og hafa samband, það er ekki flóknara en að taka upp tólið eða senda tölvupóst.
Njótið þess sem eftir er af 2010!
December 1st, 2010 by Ingveldur Ýr
Gjafabréfin eru núna á jólatilboði:
Einn söngtími 6500.- Tveir eða fleiri 6000.-
Námskeið fyrir byrjendur 35.000.-
Hægt er að fá gjafabréfin í pdf skjali eða prentuð á korti.
Kennsludiskar á tilboði: einn diskur á 3000.- tveir eða fleiri á 2500.- stk.
pantanir á ingveldur@gmail.com eða í síma 898 0108
October 30th, 2010 by Ingveldur Ýr
Jólatónleikar Spectums og Ingveldar Ýrar verða í Fríkirkjunni mánudagskvöldið 6. desember kl. 20. Píanóleikari verður Gróa Hreinsdóttir.

Þetta verða jólatónleikar fyrir alla fjölskylduna, þar sem flutt verða bæði þekkt jólalög auk jólalaga sem ekki hafa heyrst hér áður. Mikil stemmning og vandaður flutningur.
Miðaverð er 2000.- við inngang og 1500.- í forsölu í síma 898 0108 og á ingveldur@gmail.com
October 14th, 2010 by Ingveldur Ýr
Lífsins Karnival, er söngleikhús þar sem Ingveldur Ýr ásamt sérstökum gesti Garðari Thór Cortes, mun flytja lög af nýútkomnum geisladiski Ingveldar Ýrar, Portrett, auk þess Garðar Thór m.a. flytja lög úr söngleikjum. Einnig munu óvæntir leynigestir líta inn.
Hér er um að ræða sannkallað söngleikhús þar sem leikhúsi, söng og dansi er tvinnað saman í skemmtilegri sýningu, sem leikstýrt er af Ágústu Skúladóttur.
Hljóðfæraleikur er í höndum Antoníu Hevesi auk þess sem notast er við hljóðfæraleik af diskinum sjálfum, sem var í höndum Caput hópsins.
Miðasala í síma 511 4200 – miðaverð 2500.-
September 9th, 2010 by Ingveldur Ýr
Námskeiðin fóru vel af stað í vikunni, Byrjendanámskeið í söng, og Námskeið í tónfræði og nótnalestri. Námskeiðin eru vel sótt og er gaman að sjá breiddina sem sækja þau í aldri og starfsgreinum.
Ný námskeið hefjast síðan á vorönn, í janúar 2011.
Þó er hægt að byrja í einkatímum alla haustönnina, bara hafa samband á ingveldur@gmail.com
Skráning og fyrirspurnir vegna námskeiða og einkatíma fer fram á ingveldur@gmail.com
July 28th, 2010 by Ingveldur Ýr
Athugið breytta dagsetningu!
Söngnámskeið fyrir byrjendur verða kennd á mánudögum kl. 19.30
Kennd verða grunnatriðin í raddbeitingu; öndun, raddæfingar og tækni, auk þess verður gefin innsýn inn í tónheyrn og nótnalestur. Almenn sönglög og dægurlög sungin í hóp.
Á námskeiðinu er innifalinn einkatími og alls er námskeiðið í 6 skipti.
Verð 35.000 með kennsludiski og námsefni.
Skráning er hafin á ingveldur@gmail.com
July 28th, 2010 by Ingveldur Ýr
Í haust verða haldin tónfræði og nótnalestursnámskeið.
Þar verða kennd öll grunnatriðin í tónfræði og út frá því kennt að lesa nóturnar og syngja þær.
Unnið verður með tónheyrn, kennt að heyra og syngja tónbil og hljóma.
Námskeiðið er ætlað byrjendum, þe. þeim sem hafa ekki lært mikið í tónlist, eða þurfa upprifjun.
Námskeiðið er einnig tilvalið fyrir þá sem hafa verið í söng án þess að lesa nótur og vilja bæta sig á því sviði.
Stefnt er að því að námskeiðinu ljúki með grunnstigi í tónfræði samkvæmt námsskrá Menntamálaráðuneytisins.
Námskeiðið hefst byrjun september og stendur yfir í 7 vikur, kennt vikulega í tvo tíma. Þar af verða 45 mínútur notaðar í kennslu í grunnatriðum í nótnalestri og tónheyrn.
Verð 35.000 með kennsluefni, sem er núna samræmt efni frá Prófanefnd Íslands með tilheyrandi prófum.