ingveldur@gmail.com

Námskeið

Í boði eru tvennskonar námskeið:

Söngnámskeið og tónfræðinámskeið

Næstu söngnámskeið hefjast 9. febrúar 2012.

Tónfræðinámskeiðin byrja 2. febrúar 2012.

Ath! einnig er hægt að byrja á einkatímum.

Söngnámskeið eru ætluð þeim sem vilja fá undirstöðuatriðin á hreint.

Kennt er í hóptímum; öndun, raddæfingar, stuðning, líkamsstöðu ofl.

Tóneyrað er þjálfað með hnitmiðuðum æfingum og kennt að radda. Almenn sönglög sungin í hóp.

4 vikna námskeið innihalda vikulega hóptíma, auk þess er einkatími innifalinn á námskeiðinu og kennsludiskur að auki.
verð 35.000

ATH! Námskeiðin fást niðurgreidd af flestum stéttarfélögum s.s. VR, Eflingu, BHM og fleirum.

Meira um námskeiðin:
Byrjendanámskeið eru tilvalin fyrir þá sem vilja góða undirstöðu í söng og raddbeitingu og fyrir þá sem vilja halda sér við.
Einnig fyrir þá sem hafa verið í kór og þurfa að skerpa á grunntækninni og þá er þetta námskeið mjög gagnlegt. Raddæfingarnar skila öruggari beitingu bæði í tali og söng og gefur aukinn raddstyrk, líka í tali. Öndun eykur úthald raddarinnar og líkamsstaða hjálpar stuðningi sem eykur bæði kraft og úthald. Tóneyrað er þjálfað með hnitmiðuðum æfingum. Æfð eru lög til að undirstrika söngtæknina og tóneyrað. Lagavalið eru almenn sönglög, söngleikjalög og létt dægurlög.

Námskeið í tónfræði og nótnalestri

Tónfræðinámskeið – framhald byrjar 2. febrúar 2012

Námskeiðið er fyrir byrjendur í tónfræði og nótnalestri og lýkur með grunnprófi og 4. stigi sem er fyrsti hluti miðnáms samkvæmt námsskrá Menntamálaráðuneytisins..

Grunnatriðin í tónfræði kennd og nótnalestur útfrá því. Unnið verður með tónheyrn, kennt að heyra og syngja tónbil og hljóma.

Námskeiðið stendur yfir í 14 vikur, kennt vikulega í tvo tíma.
Verð 49.000 með kennsluefni og prófum.