Sönghópurinn Spectrum
Sönghópurinn Spectrum er metnaðarfullur sönghópur fólks á öllum aldri.
Meðlimir þurfa að lesa nótur, syngja utanbókar og blandað í röddum, en syngja oft einsöng ef vill.
Æfingar eru á þriðjudögum kl. 19-22, raddþjálfari og stjórnandi er Ingveldur Ýr.
Í byrjun æfinga er alltaf unnið með raddbeitingu og farið í ýmis atriði sem skipta megin máli tæknilega.
Meðlimir þurfa að vera með einhverja söngreynslu, td. úr söngtímum eða öðrum kór. Gjarnan er fenginn gestakennari á hverri önn til að kenna tengt efni, td. kom leikkonan Ólöf Sverrisdóttir sl. vetur og kenndi leikræna tjáningu og Helga Braga kenndi magadans og sviðshreyfingar. Hópurinn er þekktur fyrir líflega framkomu og sönggleði!
Þetta er mikil æfing raddlega þar sem hver rödd í hópnum skiptir sköpum, enda er hópurinn ekki í kórstærð heldur u.þ.b. 25 manns. Þar sem röddum er blandað, þe. meðlimir standa ekki í “sinni rödd” eru gerðar miklar kröfur til tóneyra hvers og eins. Oft syngja lengra komnir meðlimir einsöng með hópnum, einnig ég sjálf til skrauts og stuðnings. Sungið er ýmist með undirleik eða a capella og við mjög vandaðar útsetningar dægurlaga, söngleikjalaga og erlendra þjóðlaga.
Hópurinn æfir eina önn í einu, þe. júní – ágúst sem endar með stóru atriði á Menningarnótt, sept – des. sem endar með jólatónleikum, jan – maí sem endar með vortónleikum. Félagar skuldbinda sig til að vera út önnina, en geta tekið sér eina önn frí á ári.
Spectrum hefur komið víða fram sl. ár, td. söng hópurinn á tónleikum á Bifröst, á jólatónleikum í Gerðubergi, Fríkirkjunni, Guðríðarkirkju, Grafarvogskirkju ofl. Oft kemur Spectrum fram sem skemmtiatriði á árshátíðum í afmælisveislum og þess háttar mannfögnuðum.
Sönghópurinn syngur árlega á Menningarnótt, nú síðast í Fríkirkjunni og í Kaldalóni í Hörpu.
Mánaðargjald í Spectrum er 9000.- og innheimtist með greiðsluseðli í heimabanka.


English