Startpakki fyrir ólagvissa
Söngstúdíó býður upp á ýmsa möguleika fyrir óvana söngvara. Það geta allir unnið með röddina sína og tóneyrað, þótt ekki verði allir söngvarar.
Þeir sem telja sig ólagvissa eða laglausa geta fengið leiðbeiningar um hvernig hægt er að vinna með röddina og tóneyrað og samtengingu þess. Oft er vandamálið vöntun á sjálfstrausti og gömul hugmynd sem fólk hefur um sjálft sig, sem hægt er að laga með einföldum hætti. Jafnvel hefur fólk ákveðið sjálft að það sé “laglaust” vegna einhvers sem sagt var við það í æsku.
Startpakkinn inniheldur 3 skipti í einkatímum þar sem farið er í raddbeitingu, einföld lög kennd og unnið með tóneyrað. Einnig fylgir kennsludiskur með æfingum og diskur með undirleik af lögum sem nemandi getur tekið með sér og unnið með sjálfur, td. í bílnum eða heima.
Verð 26.000 staðgreitt
English